Ég varð bílveik síðustu helgi og það entist út á miðvikudag, en þá
fékk ég aðra flensu.
Var semsagt
veik alla
síðustu helgi (allt út af því að
Gummi getur
ekki sleppt því að reykja í bíl, og því að ég þarf að sitja í
miðjusætinu aftur í og varð þess vegna ógeðslega bílveik

) en fór
í vinnuna á þriðjudaginn. Þurfti að fara heim með
mígreni (sem eru alltaf að versna og versna hjá mér

)
klukkan 3, s.s. tveim klukkutímum fyrr en ég átti að gera. Kom svo
aftur í vinnuna á miðvikudegi, enn með jafnmikinn hausverk, en
týmdi
ekki að vera heima.Var semsagt með ógeðslegan hausverk það
sem eftir var vikunnar og
fékk hita um miðjan föstudag svo
að ég fór heim í hádeginu. Er búin að vera með mesta hausverk sem
ég hef fengið
EVER
núna alla helgina og rosalega slöpp, en búin að standa mig eins og
hetja þótt ég
segi sjálf frá og hef bara gert gott úr helginni

Til að forðast
það að ég fái hita aftur og þurfi að
eyða þriðju helginni
í röð lasin!! þá ákvað ég að taka mér daginn í dag í frí á
meðan ég er að losa mig við slenið (hausverkurinn er ekkert að
fara, en ég verð bara að sætta mig við það) en fer sennilega í
vinnuna á morgun.
Þetta var update af heilsunni minni...
In
other news:
Reynir átti afmæli
síðustu helgi og það var, eins og ég vil kalla það, annað
"Geek meet"
(basically fullt af skemmtilegu fólki að spila tölvuleiki og syngja
í SingStar og hlusta á góða tónlist

) eins og helgina þar áður.
Rosa gaman
Allir
sem einhverju máli skipta

kíktu og mér fannst kvöldið alveg
geggjað!
Fór svo í
sextugsafmæli
hjá einhverjum frænda mínum sem ég hitti aldrei og veit bara að
hann heitir
Stjáni af því að
mamma sagði mér það fyrir nokkrum dögum síðan

Ég þoli ekki svona
samkomur, en ég fékk þó allavega að hitta alla
EKTA ættingja mína... þessa sem
ég er actually í einhverju sambandi við og þekki

Á sunnudaginn skutlaði mamma mér heim,
ég keypti mér nýjan síma.
Þessa helgi gerði ég nú
ekki margt.
Á föstudaginn var nokkurskonar
stelpuhittingur, en það reyndust
bara vera ég og Hildur mestallan tíman. Guðrúnirnar kíktu stutt, en
fóru svo að horfa á vídjó. Helga og Sonja komu
um...uhh..maniggi...9 leitið? og voru til um 12/1. Reynir kíkti til
okkar um kvöldið, því hann var farinn að sakna mín þessi engill

Heyrði hann spila á gítar í fyrsta skipti,
he's got the
skillz!
Ég hvet þig í að halda áfram að spila dúlli;*
Það var
17. júní á laugardaginn og honum eyddi ég með Hildi
og Reyni. Við borðuðum á
Shalimar (nammmm!!!
*slef*) og fórum svo heim til Reynis að LAN-a Warcraft III: Frosen
Throne og Quake III, borðuðum hangiket og héldum svo áfram. Fórum í
ísbíltúr þegar við skutluðum Hildi heim. Vel heppnaður dagur if
you'd ask me
Á sunnudgainn var ég AFTUR með Hildi og Reyni. Í þetta sinn horfðum
við á
Firefly
og átum snakk allan daginn, og popp með
chop-sticks:D!!! Kvöldinu tókum við Reynir svo bara
rólega í tölvunni og að lesa (
ég: The rule of four (Belladonnaskjalið)
Reynir: Eragon).
Í dag er ég svo bara í veikindaleyfi. Er búin að vera að spila
Warcraft III síðan klukkan 7 í morgun

enda búin með helling

Skemmti mér konunglega. Skrapp reyndar í
apótekið að kaupa pilluna. Þó
svo maður sé veikur og "má ekki" fara út, þá held ég maður geri nú
undantekningu í svona tilviki, ekki satt?
Farin að leika